Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli

Ertu framsækinn kennari?

Hörðuvallaskóli leitar að kennara fyrir skólaárið 2026-2027

Í Hörðuvallaskóla eru um 520 nemendur í 1.- 7. árgangi og um 90 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Gildi skólans eru virðing, heiðarleiki og þrautseigja.

Í Hörðuvallaskóla er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur og kennarar skólans með spjaldtölvur. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu, leiðsagnarnám og unnið er eftir samþættu verkefnamiðuðu þemanámi á miðstigi skólans. Unnið er eftir læsisstefnu skólans með áherslu á PALS og Byrjendalæsi.

Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is .

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í teymi á yngsta stigi eða miðstigi
  • Samstarf við foreldra um nám og velferð nemenda.
  • Samstarf innan skólans að faglegum málefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi.
  • Þekking og reynsla af uppeldi til ábyrgðar, leiðsagnarnámi og samþættu verkefnamiðuðu þemanámi er kostur.
  • Þekking og reynsla af Byrjendalæsi og PALS er kostur.
  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Mjög góð íslenskukunnátta bæði í töluðu máli og rituðu.
Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins

Advertisement published17. March 2026
Application deadline31. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Baugakór 38, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags