

Sérkennari - Hvaleyrarskóli
Hvaleyrarskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum sérkennara
Í Hvaleyrarskóla eru um 370 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna sem endurspeglast í öllu skólastarfi. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipit og uppbyggilegt námsumhverfi. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu, skapandi starf og fjölbreyttar kennsluaðferðir.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, byrjendalæsis og orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistir/danskennslu.
Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast sérkennslu nemenda í samvinnu við skólastjórnendur, umsjónarkennara og foreldra
- Vinna að þróun skólastarfs með áherslu á teymisvinnu og faglegt samstarf
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og SMT skólafærni með það að merkmiði að tryggja öryggi og jákvætt andrúmsloft
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (skal fylgja umsókn)
- Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og áhugi á skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
- Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans
- Lipurð og jákvæðni í samskiptum
- Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á Mentor
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, [email protected] í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, [email protected] í síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.
Umsóknarfrestur er til 6. maí næst komandi. Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic































