
Sveitarfélagið Strandabyggð
Lækjarbrekka á Hólmavík er samrekinn leik-grunn- og tónskóli með um 40 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Í leikskóladeildinni eru tveir hópar, eldri og yngri.
Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla og flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Fylgt er uppeldisstefnu jákvæðs aga. Skólinn er grænfánaskóli og stefnir að því að vera heilsueflandi skóli.
Strandabyggð skiptist í Hólmavík og dreifbýlið og er ríflega 420 manna samfélag og þjónustukjarni miðja vegu milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Á Hólmavík er öll grunnþjónusta til staðar, en sömuleiðis er margt spennandi fram undan. Þá má helst nefna fyrirhugaða hótelbyggingu, atvinnuuppbyggingu, nýtt íbúðarhverfi, unnið er að endurbótum á grunn- og leikskóla og svona mætti lengi telja.

Þroskaþjálfi
Þroskaþjálfi/iðjuþjálfi óskast til starfa með nemendum og stoðþjónustu í leik- og grunnskólanum á Hólmavík. Grunnskólinn á Hólmavík er sameinaður tón-, leik- og grunnskóli með um 45 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla, flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Uppeldisstefnu jákvæðs aga er fylgt og áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, jákvæðan aga og þemabundin verkefni í lotum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita nemendum með sérþarfir leiðsögn og stuðning
- Halda utan um og stýra teymi einstakra nemenda í samráði við stjórnendur
- Vinna að gerð einstaklingsnámskráa í samstarfi við sérkennara og fylgja þeim eftir
- Mæta þörfum nemenda á heildstæðan og einstaklingsbundinn hátt til að auka félagsfærni, virkni og tilfinningaþroska
- Að veita faglega ráðgjöf til kennara og stuðningsaðila
- Aðlaga og hanna námsumhverfi svo það henti fjölbreyttum nemendahópi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi
- Þekking og reynsla af starfi með börnum með sérþarfir
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
- Þekking á PEERS og TEACCH er kostur
- Hreint sakavottorð
Advertisement published24. April 2026
Application deadline7. May 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Brunngata 2, 510 Hólmavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Grunnskólakennari
Sveitarfélagið Strandabyggð

Sérkennari - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Mýrarhúsaskóli og Valhúsaskóli auglýsa stöður.
Seltjarnarnesbær

Deildarstjóri óskast í tímabundna stöðu
Fífusalir

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljakot
Leikskólinn Seljakot

Umsjón skólasels við Nesskóla
Nesskóli

Þroskaþjálfi
Austurbæjarskóli

Kennarastöður við Nesskóla
Nesskóli

Aðstoðarskólastjóri í Bláskógaskóla
Bláskógaskóli Laugarvatni

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Leikskólakennarar
Leikskólinn Goðheimar

Sérkennslustjóri hjá leikskólanum Álfheimum
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi