

Talmeinafræðingur - Mennta- og lýðheilsusvið
Hefur þú ástríðu fyrir eflingu málþroska? Við viljum heyra frá þér!
Skrifstofa Mennta- og lýðheilsusviðs óskar eftir talmeinafræðingi til að koma að markvissri, samþættri þjónustu. Áhersla er lögð á gott samstarf milli fagfólks og þverfaglega nálgun til að tryggja farsæld barna. Á mennta- og lýðheilsusviði ríkir faglegt umhverfi þar sem metnaður, traust og lausnamiðuð vinnubrögð eru í fyrirrúmi, auk þess sem starfsfólk fær stuðning og tækifæri til þróunar, meðal annars með fræðslu og endurmenntun. Lögð er áhersla á sterk tengsl við skólasamfélagið, foreldra og aðra samstarfsaðila, bæði innan og utan sveitarfélagsins. Talmeinafræðingar mennta- og lýðheilsusviðs tilheyra deild ráðgjafar- og greiningar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hafa frumkvæði að faglegri nálgun í málefnum er varða málþroska barna í leik- og grunnskólum bæjarins
- Ráðgjöf við kennara og stjórnendur grunnskóla í tengslum við málþroska, máltjáningu, málskilning, orðaforða , frávik í framburði, boðskipti og undirstöðuþætti læsis
- Veita ráðgjöf til starfsfólks skólanna um að skapa góða málfyrirmyndir og hvernig er hægt að skapa þörf fyrir boðskipti og auka orðaforða í leik og í daglegum aðstæðum
- Greina og meta stöðu barna varðandi málþroska, boðskipti, hljóðkerfi og framburð barna í leik- og grunnskólum
- Úrvinnsla gagna, skýrsluskrif og skilafundir með forráðamönnum og kennurum
- Ráðgjöf til foreldra varðandi máluppeldi, framburðarfrávik og hljóðkerfisvanda
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Íslenskt starfsleyfi sem talmeinafræðingur
- Með réttindi á helstu greiningartæki sem tilheyra starfssviði talmeinafræðinga
- Reynsla í starfi sem talmeinafræðingur í leik- og grunnskólum
- Reynsla af greiningu, ráðgjöf og fræðslu
- Þekking á þverfaglegu samstarfi
- Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymum
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Mjög góð íslenskukunnátta
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Upplýsingar veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs [email protected]
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic


























