Fellaskóli
Fellaskóli

Talmeinafræðingur í Fellaskóla

Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks. Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag ásamt samvinnu sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast. Við höfum undanfarið unnið að ýmsum verkefnum til að bæta kennslu og aðra þjónustu við nemendur. Megináhersla er á málþroska og læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu kennara, ásamt tónlist og skapandi skólastarfi. Mikil áhersla er á læsi í yngstu árgöngunum og við vinnum náið með leikskólum hverfisins til að efla málþroska nemenda. Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma. Við bjóðum upp á skemmtilegt starfsumhverfi, flottan starfsmannahóp og rík tækifæri til að þróast í starfi.

Fellaskóli leitar að talmeinafræðingi sem er frumkvöðull og tilbúinn að finna nýjar leiðir svo að áherslur skólans varðandi málþroska, læsi á tölur og bókstafi og orðaforða nái til allra nemenda. Talmeinafræðingur vinnur náið með verkefnisstjóra málþroska- og læsis, deildarstjóra stoðþjónustu, kennurum og kemur að samstarfi við leikskóla hverfisins.

Talmeinafræðingur verður í samstarfi við talmeinafræðinga á þjónustumiðstöð (Suðurmiðstöð)

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Forysta í þróun skólastarfs varðandi málþroska og læsi í samvinnu við stjórnendur og samstarfsfólk.
  • Vinna að snemmtækri íhlutun varðandi málþroska.
  • Greining og þjálfun nemenda, gerð áætlana og eftirfylgd.
  • Ráðgjöf og fræðsla til nemenda, starfsfólks og foreldra.
  • Tengiliður við aðila utan skólans.
  • Þátttaka í málörvunarstarfi í 1. og 2. bekk.
  • Teymisvinna með starfsfólki, fulltrúum leikskóla og foreldrum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið talmeinafræðingur.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Hæfni til að sinna fræðslu og ráðgjöf til nemenda, starfsmanna og foreldra.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Góð íslenskukunnátta.
Fríðindi í starfi

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélagsSex mánaða handleiðsla er í boði fyrir nýútskrifaðan talmeinafræðing.

Advertisement published21. April 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Norðurfell 17-19 17R, 111 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags