Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari - Engidalsskóli

Engidalsskóli óskar eftir umsjónarkennara í 100% starf á miðstigi.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk. Í næsta vetur verða nemendur um 200.

Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er í innleiðingu á leiðsagnarnámi.Skólinn starfar samkæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestarnám og er lestur eina heimanám nemenda. Við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa. Við leitum að fólki sem vill taka þátt í að byggja upp öflugt skólastarf með okkur

Leiðarljós skólans eru: Ábyrgð - Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu og umsjón á miðstigi
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina yngsta stigs og lestrakennslu
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta, hæfni C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, [email protected] í síma 555-4433.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2026.

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn. Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published8. April 2026
Application deadline22. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (31)
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - íslenska sem annað mál - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi 80-100 % starf – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á heimili fatlaðs fólks - Erluás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennslufulltrúi í upplýsingatækni - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Áslandsskóli - Deildarstjóri unglingastigs – afleysing til eins árs
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks og eldri borgara
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari í hönnun og smíði - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Heimilisfræðikennari - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Íslenskukennari á unglingastigi, með áherslu á sérkennslu - Öldutúnsskóli.
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tónmenntakennari - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umjónarkennari á unglingastigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkstjóri í Þjónustumiðstöð Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Íþróttakennari - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari - Engidalsskóli - tímabundin ráðning
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmenn í tímavinnu – Lækur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Flokkstjórar hjá samstarfsfélögum - Vinnuskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Flokkstjórar í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi- Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Náms- og starfsráðgjafi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Áslandsskóli - Umsjónarkennari á yngsta stig skólaárið 2026-2027
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri leikskólamála (tímabundin staða til eins árs)
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Áslandsskóli - List- og verkgreinakennari með áherslu á hönnun og smíði
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Félagsráðgjafi - Barnavernd
Hafnarfjarðarbær