Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur þjálfunar- og gæðamála

Við hjá Isavia leitum að öflugum sérfræðingi sem hefur metnað til að styðja við örugga, faglega og samræmda framkvæmd innan deilda sem sinna flugvernd í samræmi við gildandi reglur og gæðaviðmið.

Um starfið

Sérfræðingur í þjálfunar- og gæðamálum ber ábyrgð á skipulagi, samræmingu og eftirfylgni með þjálfun, gæðamálum og innra eftirliti innan deilda sem sinna flugvernd. Starfið felur í sér náið samstarf við vottaða leiðbeinendur, þjálfunarteymi og aðra lykilaðila innan starfseminnar, með það að markmiði að tryggja stöðugar umbætur og faglega framkvæmd flugverndar.

Helstu verkefni:

  • Umsjón og utanumhald með þjálfun og innra eftirliti flugverndar
  • Samræming og eftirfylgni með störfum vottaðra leiðbeinenda
  • Skipulagning og samræming þjálfunar innan flugverndardeilda
  • Þarfagreining á sviði þjálfunar- og gæðamála
  • Umsjón með gæðamálum, gæðakerfum og eftirfylgni umbóta
  • Undirbúningur, framkvæmd og eftirfylgni innra eftirlits
  • Stuðningur við þróun og innleiðingu verklags og umbótaverkefna
  • Virkt samstarf við þjálfunarteymi og aðra lykilaðila innan Isavia

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af þjálfunarmálum og/eða gæðastjórnun
  • Þekking á regluverki og kröfum sem gilda um flugvernd eða sambærilega starfsemi
  • Geta til að greina þjálfunar- og gæðatengdar þarfir og fylgja eftir umbótum
  • Reynsla af vinnu með ferla, verklag og gæðakerfi
  • Góð samskipta- og samhæfingarhæfni í samstarfi við ólíka hagaðila
  • Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 4.maí 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurpáll D. Eðvarðsson, deildarstjóri Eftirlits og Gátstöðva, í gegnum netfangið [email protected] og Guðmundur Skúlason, deildarstjóri Öryggisleitar, í gegnum netfangið [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Advertisement published20. April 2026
Application deadline4. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.Quality tracking systems
Work environment
Professions
Job Tags