Jarðboranir
Jarðboranir
Jarðboranir

Öryggis og umhverfisfulltrúi

Hefur þú brennandi áhuga á öryggismálum?

Jarðboranir leita að öflugum aðila til að sinna starfi öryggis- og umhverfisfulltrúa við borframkvæmdir. Um er að ræða krefjandi og spennandi starf á framkvæmdasvæðum við djúpboranir eftir jarðhita.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með öryggis- og umhverfismálum á borstað.
  • Stuðla að öruggu starfsumhverfi og sjá til þess að öll verk séu unnin í samræmi við verklagsreglur félagsins.
  • Framkvæmd á ÖHU úttektum.
  • Miðlun upplýsinga á daglegum vaktaskiptafundum og vikulegum fundum með verkkaupa.
  • Skráning slysa- og atvikatilkynninga auk þátttöku í gerð atvikaskýrsla.
  • Vera leiðandi og hvetjandi í öryggis- og umhverfismálum á borstað.
  • Öryggis- og umhverfisfulltrúi vinnur náið með Gæða-, öryggis-, og umhverfisstjóra Jarðborana, verkefnastjórum og verkstjórum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum við öryggis- og umhverfismál er æskileg.
  • Reynsla af störfum við verklegar framkvæmdir er æskileg.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Gott vald á íslensku og ensku.
  • Almenn ökuréttindi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileiki til að starfa í hópi.
Advertisement published20. April 2026
Application deadline4. May 2026
Language skills
No specific language requirements
Type of work
Professions
Job Tags