
Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri er lifandi og metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 800 manns starfa saman í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Sjúkrahúsið gegnir lykilhlutverki í bráðaþjónustu og sérhæfðum meðferðum og er miðstöð læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs á Íslandi.
Á sjúkrahúsinu er veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónustu með áherslu á fagmennsku, umhyggju og samvinnu. Dýrmæt tækifæri til að vinna í sérhæfðu og fjölbreyttu starfsumhverfi og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á lærdóm, fagmennsku og mannlega nálgun.
Komdu í lið með okkur og taktu þátt í að gera Sjúkrahúsið á Akureyri enn betra! Við tökum vel á móti nýju starfsfólki.

Gjaldkeri á skrifstofu fjármála - Sjúkrahúsið á Akureyri
Laust er til umsóknar starf gjaldkera á skrifstofu fjármála við Sjúkrahúsið á Akureyri. Um er að ræða 100% stöðu og er staðan laus frá 1.maí n.k. eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greiðsla reikninga
- Greiðsluáætlanir
- Greiðsla erlendra reikninga
- Samskipti við innlenda og erlenda aðila
- Móttaka bókunarbeiðna og greiðsla ferðakostnaðar
- Samskipti og reikningagerð vegna ósjúkratryggðra
- Þáttaka í bakvöktum
- Umsjón með Gjafasjóði SAk og Hollvina SAk
- Afstemmingar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Þekking á fjárhagshluta Oracle-kerfisins er kostur
- Þekking á þjónustutengdri fjármögnun (DRG) er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
- Skipulagshæfileikar, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
Advertisement published20. April 2026
Application deadline27. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Eyrarlandsvegur, 600 Akureyri
Type of work
Skills
Business administrator
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sumarstarf hjá Eflingu – Fulltrúi á Vinnuréttindasviði
Efling stéttarfélag

Leiðtogi á fjármálasviði Deloitte
Deloitte

Menningar- og þjónustusvið - Þjónustufulltrúi sumarstarf
Reykjanesbær

Sérfræðingur í viðskiptaumsjón
Seðlabanki Íslands

Verkefnastjóri á markaðssviði – Taktu þátt í vexti og þróun
Langisjór | Samstæða

Ert þú hugmyndaríkur textasmiður?
Birtíngur útgáfufélag

Sérfræðingur þjálfunar- og gæðamála
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Tekjustjóri Okkar bílaleigu ehf./Enterprise
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Tollmiðlari - 50% starf
Aðföng

Innheimtufulltrúi
Festi

Starf á Fjármálasviði
Torcargo

HR Coordinator - Temporary position
JBT Marel