Langisjór | Samstæða
Langisjór | Samstæða
Langisjór | Samstæða

Verkefnastjóri á markaðssviði – Taktu þátt í vexti og þróun

Langisjór ehf. er í leit að metnaðarfullum einstaklingi í starf verkefnastjóra á markaðssviði.

Verkefnastjóri starfar á markaðssviði félagsins undir leiðsögn markaðsstjóra og vinnur í nánu samstarfi við dótturfélög samstæðunnar. Markaðssvið ber ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu á nokkrum þekktustu vörumerkjum landsins þar með talið Freyju og Ali. Starfið er fjölbreytt og gefur góða innsýn í atvinnulífið.

Langisjór ehf. er móðurfélag nokkurra fyrirtækja í framleiðslu og dreifingu á matvælum ásamt útleigu og þróun atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Langisjór veitir þjónustu á sviði fjármála, mannauðsmála, markaðsmála, upplýsingatæknimála og viðskiptaþróunar fyrir öll dótturfélögin.

Meðal fyrirtækja í samstæðu Langasjávar ehf. eru Alma íbúðafélag, Freyja, Mata, Matfugl, Salathúsið, Verkgarðar og Síld og fiskur. Hjá samstæðunni starfa um 420 manns af öllum uppruna vítt og dreift um landið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastjórnun á markaðssviði þ.m.t. samfélagsmiðlar og viðburðir 
  • Mótun og framkvæmd markaðsherferða í samvinnu við markaðsstjóra, auglýsingastofur og aðra fagaðila 
  • Greining markaðsganga og mat á árangri herferða
  • Yfirumsjón með efnisinnsetningu á vefi samstæðunnar 
  • Þátttaka í vöruþróun
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í viðskiptafræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi 
  • Þekking og reynsla af markaðsmálum og samfélagsmiðlum nauðsynleg 
  • Viðkomandi þarf að vera skipulagður, hafa frumkvæði og getu til að vinna undir álagi 
  • Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku 
  • Góð tölvukunnátta
Advertisement published15. April 2026
Application deadline28. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Sundagarðar 8, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AdWordsPathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.AdvertisingPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Definition of target groupsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.TikTokPathCreated with Sketch.Brand management
Work environment
Professions
Job Tags