
EMC markaðsrannsóknir
EMC sérhæfir sig í markaðsrannsóknum og verðmætri upplýsingagjöf um það sem skiptir máli
Sérfræðingur í markaðsrannsóknum og samfélagsmiðlum
EMC markaðsrannsóknir leitar að öflugum og skapandi einstaklingi til að leiða uppbyggingu og utanumhald svarendahóps fyrirtækisins og styrkja sýnileika og ásýnd fyrirtækisins á markaði.
Starfið er fjölbreytt og krefst bæði skipulagshæfni, frumkvæðis og greiningargetu. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem unnið er markvisst að því að efla tengsl við þátttakendur, hámarka þátttöku í rannsóknum, greina niðurstöður og þróa faglega viðveru fyrirtækisins á stafrænum miðlum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sýnileiki og stafrænir miðlar:
- Móta og þróa ásýnd, tón og framsetningu fyrirtækisins á samfélagsmiðlum.
- Skipuleggja og framleiða efni fyrir stafræna miðla með það að markmiði að hámarka vitund og þátttöku.
- Þróa og hrinda í framkvæmd aðgerðum sem efla sýnileika og styrkja vörumerkið.
- Greina árangur miðlunar og leggja til umbætur á grundvelli gagna.
Svarendahópur og þátttakendasamskipti:
- Yfirumsjón með svarendahóp fyrirtækisins.
- Hámarka skráningu nýrra þátttakenda og tryggja þátttöku ólíkra markhópa.
- Viðhalda góðri svörun og virkni í könnunum.
- Þróa og halda utan um umbunarkerfi svarendahóps.
- Byggja upp og viðhalda tengsl við þátttakendur.
- Greina gögn um virkni svarendahóps og nýta niðurstöður til umbóta.
Önnur störf:
- Greining og miðlun rannsóknarniðurstaðna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. markaðsfræði, viðskipti, miðlun eða félagsvísindi).
- Reynsla af samfélagsmiðlum, efnisgerð eða stafrænum miðlum.
- Mjög góð færni í textagerð á íslensku og góð enskukunnátta.
- Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Framúrskarandi samskiptahæfni.
- Greiningarhæfni og geta til að vinna með gögn.
Advertisement published16. April 2026
Application deadline3. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Bjargargata 1, 102 Reykjavík
Type of work
Skills
Article writingHuman relationsMarket analysisMarketingMarket researchOnline marketingResearchIndependenceDefinition of target groupsPlanningReport writingContent writingTeam workResearch data analysisBrand management
Professions
Job Tags
Similar jobs (9)

Sérfræðilæknir við Líknarmiðstöð
Landspítali

Verkefnastjóri á markaðssviði – Taktu þátt í vexti og þróun
Langisjór | Samstæða

Markaðs- og viðburðastjóri
BAKO VERSLUNARTÆKNI ehf

Sérfræðingur við Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum
Háskólinn á Bifröst

Sölumaður/skrifstofa dagvinna - framtíðarstarf
ATC

Þjónustu- og verkefnastjóri
Markend ehf.

Birtingastjóri á stafrænum miðlum
MARS MEDIA

Sérfræðingur í vistfræði ferskvatnsfiska - fiskifræðingur
Hafrannsóknastofnun

Upplýsingafulltrúi
Sameyki