BAKO VERSLUNARTÆKNI ehf
BAKO VERSLUNARTÆKNI ehf
BAKO VERSLUNARTÆKNI ehf

Markaðs- og viðburðastjóri

Bako Verslunartækni (BVT) leitar að kraftmiklum og árangursdrifnum markaðs- og viðburðastjóra sem vill taka þátt í að efla sýnileika fyrirtækisins og styðja við áframhaldandi vöxt.

    Um Bako Verslunartækni

    Bako Verslunartækni er innflutnings-, sölu- og þjónustufyrirtæki með fjölbreyttan hóp viðskiptavina á ólíkum mörkuðum. Fyrirtækið starfar að mestu á fyrirtækjamarkaði með öfluga 12 manna söludeild og um 40 starfsmenn.

    Við bjóðum allt fyrir fagfólk í eldhúsum, ástríðufulla kokka og fjölbreyttar verslunar- og vöruhúsalausnir fyrir fyrirtæki. BVT leggur áherslu á gæði, fagmennsku og lausnir sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.

    📩 Umsóknir og fyrirspurnir sendist til: Alfreð.

    Sverrir Viðar Hauksson

    [email protected] I 7790909

    Helstu verkefni og ábyrgð

    Helstu verkefni

    • Framleiðsla og skipulagning efnis fyrir samfélagsmiðla
    • Gerð og utanumhald netauglýsinga og birtingaráætlana
    • Viðhald vefsíðu fyrirtækisins með faglegu efni og textagerð
    • Skipulagning og framkvæmd viðburða og kynninga
    • Þátttaka í mótun og framkvæmd markaðsáætlunar
    • Samstarf við söluteymi og aðra lykilaðila
    Menntunar- og hæfniskröfur

    Hæfniskröfur

    • Reynslu af markaðsstjórnun eða sambærilegum störfum
    • Gott auga fyrir efni, framsetningu og textagerð
    • Reynslu af viðburðaskipulagi
    • Reynsla af því að vinna með myndefni og skrifa texta til birtingar á samfélagsmiðlum 
    • Geta til að taka myndir og framleiða / hanna eigið efni mikill kostur
    • Mjög góða skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
    • Frumkvæði, metnað og árangursdrifna hugsun
    • Áhuga á mat og matarmenningu 
    Fríðindi í starfi

    Hvað bjóðum við?

    • Stórskemmtilegt og lifandi starfsumhverfi
    • Endalaus tækifæri til að þróa og framkvæma nýjar hugmyndir
    • Sjálfstæð vinnubrögð og traust
    • Öflugt teymi og góðan starfsanda
    Advertisement published10. April 2026
    Application deadline24. April 2026
    Language skills
    IcelandicIcelandic
    Required
    Expert
    EnglishEnglish
    Required
    Advanced
    Location
    Dragháls 22
    Type of work
    Skills
    PathCreated with Sketch.AdvertisingPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Online marketing
    Work environment
    Professions
    Job Tags