

Rekstrarstjóri
Malbikstöðin óskar eftir að ráða rekstrarstjóra sem ber ábyrgð á daglegum rekstri fyrirtækisins og leiðir framkvæmd verkefna í nánu samstarfi við stjórnendateymi félagsins. Rekstrarstjóri tryggir að framkvæmd stefnu og langtímasýn fyrirtækisins sé fylgt eftir og að reksturinn sé agaður, skilvirkur og áreiðanlegur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórna daglegum rekstri.
- Samhæfa sölu, rekstur og fjármál.
- Fylgja eftir framvindu verkefna og afhendingu verka.
- Kostnaðareftirlit og rekstrarárangur.
- Leiðtogahlutverk í stjórnendateymi fyrirtækisins.
Hæfniskröfur
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri.
- Góð fjárhagsleg innsýn og skilningur á kostnaði.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla af verkefnastjórnun á sviði framkvæmda.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði, iðnaðarverkfræði eða verkfræði.
- Leiðtogahæfileikar og sterk framtíðarsýn.
- Góð hæfni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Gildi Malbikstöðvarinnar
Ábyrgð
Við stöndum við orð okkar og berum ábyrgð á okkar verkum frá undirbúningi til afhendingar.
Sveigjanleiki
Við vinnum í umhverfi þar sem aðstæður breytast hratt og mætum því með lausnamiðuðu hugarfari og samvinnu.
Vinnusemi
Við leggjum metnað í að gera hlutina rétt og skila góðu verki.
Um Malbikstöðina
Malbikstöðin var stofnuð árið 2004 og starfa um 60 manns hjá fyrirtækinu. Félagið hefur vaxið og dafnað vel frá stofnun þess en á árinu 2020 var reist ný framleiðslustöð fyrir malbik með áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og endurvinnslu malbiks. Félagið rekur meðal annars malbiksframleiðslu, verkstæði og rannsóknarstofu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.
English
Icelandic










