Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Verkefnastjóri/-stýra framkvæmda

VIÐ BJÓÐUM SPENNANDI FRAMTÍÐ!

Langar þig að taka þátt í að byggja upp og þróa orkuflutningskerfi framtíðarinnar?

Við hjá Landsnet leitum að öflugum verkefnastjóra/-stýru framkvæmda til að slást í hópinn með frábæru teymi sem leiðir stór og krefjandi verkefni um land allt – frá hugmynd og hönnun til verklegrar framkvæmdar.

Við leitum að einstaklingi með sterkan bakgrunn á rafmagnssviði sem hefur áhuga á að leiða framkvæmdir í flóknum og mikilvægum orkuframkvæmdum.

Hvað felst í starfinu?

Sem verkefnastjóri/-stýra framkvæmda færð þú að:

  • Stýra fjölbreyttum verkefnum sem ná yfir allt ferlið – undirbúning, útboðshönnun, verksamninga, verklega framkvæmd og verklok.
  • Samræma vinnu margra ólíkra aðila – sérfræðinga Landsnets, ráðgjafa, verktaka og annarra hagaðila.
  • Tryggja skilvirka framvindu með góðu skipulagi, eftirfylgni og vönduðum verkferlum.
  • Sjá til þess að gæði, öryggi og tímarammar haldist í verkefnum.
  • Taka þátt í þróun og umbótum, bæði innan verkefna og í verklagi fyrirtækisins.
  • Fá yfirsýn yfir uppbyggingu flutningskerfisins um land allt og vinna að framtíðarlausnum í orkuskiptum og sjálfbærni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í rafmagnsverkfræði, raforkuverkfræði eða rafmagnstæknifræði.
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun, hönnun eða eftirliti með verklegum framkvæmdum.
  • Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni.
  • Lausnamiðað, metnaðarfullt og jákvætt viðhorf.
  • Hæfni til að miðla þekkingu og stuðla að jákvæðri öryggismenningu
Fríðindi í starfi
  • Samstarf við fjölbreyttan hóp sérfræðinga sem vinna að framtíð raforkukerfisins.
  • Stuðning við að vaxa í starfi og bæta við þig þekkingu.
  • Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.
Advertisement published5. March 2026
Application deadline22. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Miðási 7, 700 Egilsstöðum
Rangárvöllum
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags