Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands

Sérfræðingur í yfirsýn fjármálainnviða

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing með þekkingu á fjármálainnviðum í deild rekstrarlegra áhættuþátta á sviði varúðareftirlits. Leitað er að einstaklingi til að taka þátt í að móta eftirlit og yfirsýn með kerfislega mikilvægum fjármálainnviðum íslenska fjármálamarkaðarins, sem skiptast í grunninnviði og kjarnainnviði.

Seðlabankinn fylgist með öryggi, skilvirkni og hagkvæmni fjármálainnviða og gerir tillögur að úrbótum þegar þess gerist þörf. Yfirsýn er höfð með kerfislega mikilvægum fjármálainnviðum (til að mynda millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands). Yfirsýn Seðlabankans felur í sér reglulegt eftirlit með virkni og rekstraröryggi kerfislega mikilvægra innviða.

Í deild rekstrarlegra áhættuþátta starfar öflugur hópur sérfræðinga að verkefnum sem m.a. snúa að mati á rekstraráhættu, upplýsingatækniáhættu, og stjórnarháttum. Svið varúðareftirlits hefur eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga, lífeyrissjóða og annarra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Auk þess hefur sviðið yfirsýn og reglulegt eftirlit með virkni og rekstraröryggi kerfislega mikilvægra fjármálainnviða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Reglulegt eftirlit með virkni og rekstraröryggi kerfislega mikilvægra innviða, þ.m.t. á grundvelli áhættumats
  • Yfirsýn yfir þróun áhættu tengd fjármálainnviðum
  • Þróa aðferðafræði yfirsýnar bankans með kerfislega mikilvægum innviðum
  • Rita matsskýrslur í kjölfar úttekta
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á greiðslumiðlun og greiðsluþjónustu
  • Þekking eða reynsla af störfum í eftirliti og/eða innri endurskoðun er kostur
  • Tæknileg þekking á virkni greiðslumiðlunar á íslenska fjármálamarkaðnum og/eða á evrópska markaðnum, t.d. SWIFT, Millibankakerfi og Target (TIPS, T2) er kostur
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
  • Frumkvæði, heiðarleiki, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku
Advertisement published16. April 2026
Application deadline27. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags