Landsbankinn
Landsbankinn
Landsbankinn

Forstöðumaður lögfræðiþjónustu

Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi til að leiða lögfræðiþjónustu Landsbankans. Viðkomandi þarf að hafa metnað til að styðja við þróun nútímalegrar bankaþjónustu með það að markmiði að einfalda líf viðskiptavina og stuðla að skilvirkni í starfseminni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Mikilvægt er að nýr forstöðumaður búi yfir leiðtogahæfni, sýni yfirvegun þegar á reynir og geti forgangsraðað verkefnum með skýrum hætti. Jafnframt er lögð áhersla á hæfni til að byggja upp öfluga liðsheild, jákvæðan starfsanda og eiga góð samskipti innan sem utan bankans.

Lögfræðiþjónusta er eining sem starfar beint undir bankastjóra og sinnir fjölbreyttri lögfræðiþjónustu og ráðgjöf þvert á bankann og bankaráð.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldbær reynsla af lögfræðistörfum og gott orðspor
  • Góð þekking á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja
  • Þekking og reynsla af störfum á fjármálamarkaði
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að leiða teymi og laða fram það besta í fólki
  • Embættispróf í lögfræði (cand.jur.), ML í lögfræði
Advertisement published13. April 2026
Application deadline26. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Reykjastræti 6
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Cand.jur.PathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relations
Professions
Job Tags