
Lögfræðingur í teymi félags- og kjaramála
Kennarasamband Íslands auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings í teymi félags- og kjaramála á skrifstofu sambandsins. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á réttindamálum launafólks og kjarasamningum.
Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér mikilvægt hlutverk við að tryggja faglega og trausta lögfræðilega þjónustu við KÍ, aðildarfélög þess og félagsfólk. Mikilvægt er að viðkomandi hafi framúrskarandi samskiptahæfni, geti unnið sjálfstætt og í teymi, sýni frumkvæði í starfi og hafi sterkan vilja til að styðja við starfsemi og markmið KÍ.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórnun lögfræðilegra verkefna innan KÍ
- Lögfræðileg ráðgjöf til stjórnar, starfsfólks, aðildarfélaga og félagsfólks
- Þátttaka/Ráðgjöf í kjarasamningsgerð að beiðni formanna aðildarfélaga
- Yfirlestur samninga og samningagerð
- Mat á lagalegri áhættu og umsagnir um lagafrumvörp
- Aðstoð við undirbúning dómsmála og önnur lögfræðileg úrlausnarefni
- Þátttaka/Seta í nefndum, ráðum og samráðshópum fyrir hönd KÍ
- Þróun og yfirferð verkferla í lögfræðilegu tilliti
- Ritun lögfræðilegrar umfjöllunar á miðla KÍ
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullnaðarpróf í lögfræði
- Að minnsta kosti tveggja ára starfsreynsla
- Mjög góð þekking á vinnurétti, stjórnsýslurétti og persónuvernd
- Mjög góð greiningarhæfni
- Mjög góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og drifkraftur í starfi
- Lausnamiðuð hugsun og nákvæmni
- Hæfni til að vinna undir álagi og góð skipulagshæfni
- Hæfni til að starfa í teymi, miðla þekkingu og stuðla að jákvæðu og árangursríku samstarfi
- Mjög góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
- Þekking á Norðurlandamáli er kostur
- Lögmannsréttindi eru kostur
Advertisement published1. April 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (6)

Lögfræðingur hjá Saga legal
Saga legal

Lögfræðingur á sviði fjarskipta og netöryggis
Innviðaráðuneytið

Sérfræðingur á álagningarsviði hjá Skattinum
Skatturinn

Lögfræðingur á mannauðssvið Fjársýslunnar
Fjársýslan

Lögfræðingar hjá KPMG Law
KPMG Law ehf.

Legal Officer – Internal Market Affairs (General)
EFTA Surveillance Authority