Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Viðhald eftirlits- og gæðakerfa

Isavia leitar að öflugum starfsmanni í viðhald öryggis- og eftirlitskerfa á Keflavíkurflugvelli (KEF). Starfið tilheyrir sérhæfðu viðhaldi og gegnir lykilhlutverki í að tryggja öruggan, stöðugan og skilvirkan rekstur allan sólarhringinn.

Lögð er áhersla á kerfisbundið viðhald, eftirlit og bilanagreiningu í tæknilega krefjandi rekstrarumhverfi. Í eignahópnum eru m.a. aðgangsstýringar, brunaviðvörunarkerfi, myndavélakerfi, útkallskerfi, UPS og bílastæðakerfi. Starfið býður upp á tækifæri til að vinna með mikilvæg og sérhæfð kerfi í einu stærsta og flóknasta öryggisumhverfi landsins.

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia. Þar að auki bjóðum við uppá hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Helstu verkefni:

  • Kerfisbundið viðhald öryggis- og eftirlitskerfa samkvæmt viðhaldsáætlunum
  • Eftirlit með ástandi eigna og trygging rekstraröryggis kerfa
  • Bilanagreining og viðbrögð við bilunum í öryggis- og eftirlitskerfum
  • Skráning viðhaldssögu og -vinnu í viðeigandi kerfi
  • Tilkynning og utanumhald um notkun varahluta
  • Stuðningur við uppsetningu og innleiðingu nýrra kerfa og eigna
  • Þátttaka í úrlausn bilana á öðrum eignum þegar við á

Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í rafvirkjun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla eða þekking á viðhaldi öryggis- og eftirlitskerfa
  • Framúrskarandi samskiptafærni og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Umsóknarfrestur er til og með 5.maí 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Samson Jóhannsson, [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Advertisement published21. April 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ElectricianPathCreated with Sketch.ElectricianPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags