Reiknistofa bankanna
Reiknistofa bankanna
Reiknistofa bankanna

Sérfræðingur á rekstrarvakt

Við erum að leita að áhugasömum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á rekstri tölvukerfa, eftirliti og öryggismálum. Rekstrarvakt RB sinnir vöktun og eftirliti með kerfum RB og annarra fjármálafyrirtækja, allan sólarhringinn, allan ársins hring. Starfsfólk hópsins vinnur á vöktum og bregst við uppákomum í fjármálakerfinu.

Um er að ræða frábært fyrsta starf fyrir t.d. tölvunarfræðing sem gefur mikla möguleika til starfsþróunar innan fyrirtæksins.

Helstu verkefni:

  • Eftirlit og viðbragð við rekstrar- og/eða öryggisatburðum
  • Stuðningur og samskipti við aðra hópa innan sem utan fyrirtækis
  • Regluleg verkefni eins og prófanir á tvöfaldri uppsetningu kerfa, skýrslugerð og eftirlit með keyrslu vinnsla
  • Sérverkefni til þess að betrumbæta vöktun eða viðbrögð við uppákomum

Hæfniskröfur:

  • Menntun við hæfi sem nýtist í starfi er kostur (t.d. tölvunarfræði/kerfisfræði)
  • Þjónustulund og samskiptahæfileikar
  • Áhugi á netþjónum, netkerfum og gagnagrunnum
  • Sjálfstæð vinnubrögð og samviskusemi
  • Næmni fyrir smáatriðum og góð yfirsýn
  • Hæfni til að vinna vel undir álagi þegar þess þarf
  • Gott vald á íslensku sem og ensku

Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur þá hvetjum við þig samt sem áður til þess að sækja um, þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að í þetta eða annað starf.

RB er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður með sterka vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á að starfsfólk fái að læra og þróast í starfi.

Höfuðstöðvar RB eru á Dalvegi 30 í björtu og hlýlegu húsnæði þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Starfsánægja í RB hefur verið há um árabil og endurspeglar metnað fyrirtækisins til að hlúa vel að starfsfólki.

RB hefur hlotið jafnlaunavottun og leggur áherslu á launajafnrétti sem og jafnrétti kynjanna í einu og öllu. RB er fjölskylduvænn vinnustaður með sveigjanlega fjarvinnustefnu.

Öll kyn eru hvött til þess að sækja um.

Umsóknum þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvers vegna þú ættir að verða fyrir valinu.

Umsóknarfrestur er til og með 21.1.2025

Nánari upplýsingar veitir Ingvi Ágústsson, forstöðumaður rekstrarstýringar, ingvi.agustsson@rb.is

Advertisement published7. January 2025
Application deadline21. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags