Fjallsárlón ehf.
Fjallsárlón ehf.
Fjallsárlón ehf.

Rekstrarstjóri

Við leitum að öflugum og framsæknum aðila til að halda utan um daglegan rekstur Fjallsárlóns í Öræfum. Viðkomandi þarf að búa yfir framúrskarandi leiðtogahæfni og metnaði til að ná árangri, skapa ný tækifæri og að takast á við ólíkar áskoranir.

Í starfinu felst skipulagning vinnu starfsmanna á Fjallsárlóni í samvinnu við yfirleiðsögumenn og yfirmann veitingastaðar. Tryggja gæði þjónustunnar með eftirliti og yfirumsjón, annast þjálfun starfsmanna, gæðamál og fleira.

Félagið útvegar húsnæði fyrir starfsfólk og er hluti starfsins skipulagsvinna í kringum starfsmannaaðstöðuna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með daglegum rekstri veitingastaðar og ferðaþjónustu
  • Tryggja skilvirka og góða þjónustu
  • Starfsmannahald og yfirumsjón starfsmanna aðstöðu.
  • Þátttaka í stjórnendafundum, stefnumótun og þróun verkferla
  • Eftirfylgni og úrbætur
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi enskukunnàtta íslenskukunnátta er nauðsynleg
  • Árangursrík reynsla af stjórnun, rekstri og teymisvinnu
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. 
  • Reynsla af starfsmannamálum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hæfni til að vinna undir álagi með lausnamiðað viðhorf
  • Þekking á gæðamálum er kostur
Fríðindi í starfi

Húsnæði er í boði á staðnum

Advertisement published21. April 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Fjall , 785 Öræfi
Type of work
Professions
Job Tags