
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar og Blómavals á Ísafirði
Húsasmiðjan leitar að metnaðarfullum leiðtoga til að reka verslun okkar á Ísafirði. Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir þjónustu og fólki, er söludrifinn og hefur jákvætt hugarfar. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir réttan aðila til að vera þátttakandi í frekari uppbyggingu á örum og spennandi markaði.
Húsasmiðjan er leiðandi á byggingavörumarkaði, með sterk og vönduð vörumerki. Blómaval þjónustar blóma- og garðáhugafólki allt árið um kring.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og ábyrgð á daglegri starfsemi, rekstri og afkomu
- Sköpun og eftirfylgni viðskiptasambanda
- Umsjón með innkaupum og birgðahaldi
- Umsjón með starfsmannamálum
- Stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stjórnunarreynsla og hæfni til að leiða fólk til árangurs
- Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
- Góð þekking á verslunarrekstri og/eða á byggingavörumarkaði
- Reynsla af sölustörfum, sölustjórnun og viðskiptatengslum er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla
- Aðgangur að orlofshúsum
- Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur
- Afsláttarkjör í verslunum okkar
Advertisement published8. April 2025
Application deadline5. May 2025
Language skills

Required
Location
Æðartangi 2, 400 Ísafjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Óskum eftir starfsmönnum
Fagafl ehf.

Kennari ungbarnaleikskóla
Seltjarnarnesbær

Deildarstjóri ungbarnaleikskóla
Seltjarnarnesbær

Rekstraraðili mötuneytis
Heimavist MA og VMA

Húsasmiður óskast til starfa
Jóhann Hauksson Trésmíði ehf.

Smiður óskast til starfa
Traustafl ehf.

Uppsetning álglugga og hurða / Installation of facades
Fagval

Deildarstjóri leikskóla, fullt starf
Seltjarnarnesbær

Starfsfólk óskast
Pípulagnir suðurlands ehf

Viðhaldsfulltrúi
Alma íbúðafélag

Verslunarstjóri - Kjörbúðin Dalvík
Kjörbúðin

Rekstrarstjóri handknattleiksdeildar Stjörnunnar
Ungmennafélagið Stjarnan