Traustafl ehf.
Traustafl ehf.
Traustafl ehf.

Smiður óskast til starfa

Traustafl ehf óskar eftir að ráða smiði til starfa í viðhaldsverkefni og nýsmíði.

Starfið hentar laghentum einstakling sem hefur gaman af því að leysa verkefni og klára þau með vönduðum og úthugsuðum hætti. Verkefnin eru mikið á opinberum stöðum þar sem full starfsemi er í gangi og þarf því hreinlæti og þrifnaður að vera í fyrirrúmi og oft má hvorki skilja eftir efni né verkfæri eftirlitslaus. Flest verkefnin þurfa að þola mikinn ágang fólks og mega ekki skapa slysahættu af neinu tagi og því er það lykilatriði að verja frekar meiri vinnu í að skila af sér vönduðu verki þó það taki lengri tíma.

Starfshlutfallið miðast við 100% vinnu og fulla vinnudaga en möguleiki er á sveigjanleika fyrir barna og fjölskyldufólk hvað varðar vinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn húsasmiði og viðhald fasteigna.
  • Ísetning á gluggum og hurðum.
  • Lekaviðgerðir tengdar gluggum, hurðum og þökum.
  • Fjölmörg sérverkefni sem þarf laghentan einstakling í sem getur starfað sjálfstætt.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af smíðavinnu
  • Sveinspróf æskilegt
  • Vinnuvélapróf mikill kostur
  • Ökuréttindi
  • Íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Farsímaáskrift
  • Möguleiki á vinnubíl til umráða
  • Vinnuföt
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Menntunarstyrkur til námskeiða tengd starfi
  • Vinnutengt félagsstarf
Advertisement published4. May 2025
Application deadline25. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Building skillsPathCreated with Sketch.Carpenter
Professions
Job Tags