DNG
Fyrirtækið DNG ehf. var stofnað af einstaklingum árið 1982 og hófst framleiðsla á færavindum 1984. Í tímans rás hefur fyrirtækið komið að hönnun og framleiðslu margskonar rafeinda- og tæknibúnaðar. Snemma komu nokkur önnur fyrirtæki að rekstrinum og lögðu lið við að koma á framfæri nýjum gerðum af færavindum. Slippurinn Akureyri ehf. keypti allt hlutafé í DNG árið 2008. Helsta framleiðsla fyrirtækisins er DNG færavindan sem er smíðuð og samsett á Íslandi. Færavindan varð fljótt vinsæl meðal smábátasjómanna, jafnt innanlands sem utan. Fyrsta gerð DNG færavindunnar var verulega frábrugðin þeirri vindu sem framleidd hefur verið undanfarin ár. Eftir því sem tæknin þróaðist var hönnuð og markaðssett ný gerð árið 1986 sem oft hefur verið kölluð sú „Gamla Gráa“ í seinni tíð. Þessi vinda var framleidd næstu fjögur árin eða til 1990 við miklar vinsældir og er hún enn víða í fullri notkun. Næstu fimm árin, eða 1990-1995, var framleidd gerð sem kallast C-5000i sem var enn frekari þróun frá fyrri gerðum. Í byrjun árs 1995 kom síðan fram C-6000i vindan sem er þá í raun fjórða kynslóðin og er hún enn í framleiðslu. Miklar framfarir áttu sér stað með tilkomu þessarar gerðar enda hafði mikil þróun átt sér stað í rafeinda- og tölvutækni. Nokkrar breytingar hafa þó orðið á C-6000i vindunni í gegnum tíðina, einkum á hugbúnaði. Framleiðsla C-6000i færavindunnar er enn í gangi en 2014 var hafin vinna við þróun fimmtu kynslóðar vindu sem þegar hefur verið kynnt undir heitinu C-7000i. DNG ehf. starfar eftir ISO 9001 vottuðu gæðakerfi og er vörumerkið DNG er vel þekkt enda hefur fyrirtækið starfað í yfir 35 ár og á þeim tíma bæði auglýst vörur sínar og tekið þátt í fjölda vörusýninga í mörgum löndum. Framtíðarsýn DNG mótast fyrst og fremst af því að halda áfram að vera leiðandi á sviði færaveiða, bæði hvað varðar tækni og gæði. Fyrirtækið vill nýta og fylgja eftir þeim nýju möguleikum sem sífellt eru að skapast samfara þróun á sviði rafeindatækni. Það hefur verið DNG mikils virði að eiga tryggan heimamarkað sem fyrirtækið hefur átt gott samstarf við í gegnum árin. Þessi nálægð við reynsluríka notendur færavindunnar er ómetanleg og hefur það oft auðveldað ýmsar prófanir og vöruþróun.
Rafeindavirki/Rafvirki - framleiðsludeild DNG færavindur
Slippurinn Akureyri ehf. óskar eftir metnaðarfullum og hæfum rafeindavirkja/rafvirkja til starfa í framleiðsludeild DNG færavindur í 100% starf. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í framsæknu fyrirtæki í stöðugum vexti, þar sem viðhald og þróun er í öndvegi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framleiðsla og viðgerðir á rafeinda- og rafbúnaði fyrir DNG færavindur
- Tengingar og samsetningar rafbúnaðar og mótora
- Móttaka og skráning véla sem berast í viðgerð
- Þjónusta við viðskiptavini í gegnum síma og tölvupóst varðandi viðgerðir og leiðbeiningar
- Samsetning og viðgerðir á DNG færavindum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinsbréf í rafeindavirkjun eða rafvirkjun
- Faglegur metnaður, öguð vinnubrögð og frumkvæði
- Stundvísi, áreiðanleiki og öryggisvitund
- Lipurð í samskiptum og lausnamiðuð hugsun
- Kunnátta í íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
Advertisement published15. November 2024
Application deadline27. December 2024
Language skills
English
IntermediateRequired
Icelandic
IntermediateRequired
Location
Naustatangi 2, 600 Akureyri
Type of work
Skills
ProactiveAmbitionElectronic technicsElectricianPhone communicationEmail communicationIndependencePunctualJourneyman license
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Þjórsársvæði, rekstur og viðhald aflstöðva
Landsvirkjun
Bifvélavirki hjá Max1/Vélalandi - Hafnarfirði
MAX1 | VÉLALAND
Rafvirki í sérverkefni!
Securitas
Rafvirkjar
VHE
Rafvirki
Raf-x
Rafvirki/tæknimaður
Rými
Netmaður með tæknikunnáttu
Örugg afritun
Nemi í bifvélavirkjun
Brimborg
Iðnmenntaðir einstaklingar
Eldberg ehf.
Tæknistjóri vatns og hitaveitu
HS Veitur hf
Rafvirki í tengivirkjateymi
Landsnet hf.
Verkstjóri rafmagns í Hafnarfirði og Garðabæ
HS Veitur hf