Örugg afritun
Örugg afritun

Netmaður með tæknikunnáttu

Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi til að ganga til liðs við okkar frábæra teymi. Starfið er fjölbreytt og krefst sterkrar tæknikunnáttu og lipurðar í samskiptum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Rekstur netkerfa:  Viðhald, eftirlit og uppfærslur á netkerfum fyrirtækja til að tryggja hámarks árangur og öryggi.   

Heimsóknir hjá viðskiptavinum:  Að veita persónulega þjónustu, leysa úr tæknilegum áskorunum og koma með ráðleggingar.   

Innleiðingar: Skipulag og framkvæmd á innleiðingu nýrra kerfa og lausna, frá fyrstu stigum til lokaskila.   

Úrbætur og hagræðing: Meta núverandi kerfi og þróa lausnir sem bæta afköst og einfalda rekstur.   

Menntunar- og hæfniskröfur

- Reynsla og þekking á netkerfum (LAN, WAN, VPN o.fl.).   

- Góð innsýn í netöryggi og varnir gegn áhættum.   

- Hæfni í uppsetningu og stillingu netbúnaðar (s.s. Routera, Switcha og eldveggja).   

- Þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar.   

- Skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.   

- Þekking á netstýrikerfum og viðeigandi forritum er kostur.   

- Ökuréttindi og vilji til að ferðast vegna vinnu.   

Fríðindi í starfi

- Krefjandi og skemmtilegt starf í ört vaxandi fyrirtæki.   

- Sveigjanleika og möguleika á faglegum vexti.   

- Samkeppnishæf kjör og tækifæri til þjálfunar.   

- Frábæran vinnustað þar sem hugmyndir eru velkomnar og metnaður starfsfólks fær að njóta sín.   

Advertisement published15. November 2024
Application deadline15. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Bolholt 8, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags