Bifvélavirki hjá Max1/Vélalandi - Hafnarfirði
Verkstæði Max1/Vélalands að Dalshrauni 5 í Hafnarfirði leitar að hæfileikaríkri og duglegri manneskju í starf bifvélavirkja í bilanagreiningu og við viðgerðir á Ford, Volvo, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel bílum.
Starfið er einstaklega lifandi og skemmtilegt þar sem unnið er við nýjustu bílatækni með öflugan búnað til. Allt kapp er lagt á að gera öll störf eins létt og kostur er með margvíslegum búnaði.
Starfsmannaaðstaða er með framúrskarandi búningsaðstöðu ásamt því að öflugt starfsmannafélag er starfrækt hjá Brimborg.
Við leitum að manneskju til að ganga til liðs við þjónustuteymi Max1/Vélalands sem þykir spennandi að vinna við nýjustu tækni í frábærum hóp tæknimanna með góðum stuðningi samstarfsfólks og stjórnenda þar sem eru miklir möguleikar til símenntunar.
- Vinna við bilanagreiningu, þjónustu og við viðgerðir á Ford, Volvo, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel bílum.
- Þátttaka í þjálfun og símenntun
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Réttindi í bifvélavirkjun eða mikil reynsla af bílaviðgerðum
- Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
- Geta sýnt frumkvæði í starfi og unnið sjálfstætt
- Gilt bílpróf
- Margvísleg fríðindi sbr. mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vöru og þjónustu fyrirtækisins