

Ráðgjafi við söludeild flutningalausna
Eimskip leitar að öflugum starfsmanni í söludeild flutningalausna. Um er að ræða framtíðarstarf við þjónustu og samskipti við viðskiptavini.
Starfið er fjölbreytt og viðkomandi þarf að vera þjónustulipur og drífandi og geta unnið að mörgum verkefnum í einu.
Starfs- ábyrgðarsvið:
- Þjónusta við viðskiptavini
- Samskipti við erlendar skrifstofur
- Upplýsingagjöf og ráðgjöf til viðskiptavina
- Bakvinnsla gagna
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Nákvæm vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
- Þekking og/eða reynsla af verkefnum tengdum flutningum er kostur
- Að geta haft marga bolta á lofti í einu og unnið undir álagi
Nánari upplýsingar um starfið gefur Kristinn Kjærnested, forstöðumaður söludeildar flutningalausna, [email protected].
Eingöngu er tekið við umsóknum hér í gegnum ráðningarvefinn.
Umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst 2025.
Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Fríðindi í starfi
Öflugt Starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira













