Sjóvá
Sjóvá
Sjóvá

Sérfræðingur í bótaskyldu ökutækjatjóna

Við leitum að aðila í starf sérfræðings í bótaskyldu ökutækjatjóna. Í boði er krefjandi starf í samstilltum hópi fólks sem leggur metnað í að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • ráðgjöf og þjónusta til viðskiptavina vegna ökutækjatjóna
  • yfirferð á tjónaskýrslum og tjónsatvikum með hliðsjón af gögnum
  • gagnaöflun vegna tjóna
  • ákvörðun bótaskyldu í tjónum og að fylgja eftir niðurstöðum mála
Menntunar- og hæfniskröfur
  • háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
  • jákvætt hugarfar, góð aðlögunarhæfni og geta til að vinna sjálfstætt
  • gott vald á íslensku og ensku og góð tölvufærni
  • reynsla af tjónaafgreiðslu er kostur en ekki skilyrði
Advertisement published24. July 2025
Application deadline7. August 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Kringlan 5, 103 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags