
HTH innréttingar
Eldhúsinnréttingarnar frá HTH eru framleiddar í Danmörku og endurspegla það allra besta í danskri hönnun. Þær eru í senn sígildar og nútímalegar, stílhreinar og glæsilegar.
Innréttingarnar okkar eru framleiddar eftir ströngu gæðaeftirliti og hafa fengið ISO 9001, ISO 14001 og OHSAS 18001 vottun fyrir að uppfylla ítrustu gæða- og umhverfisstaðla.

Söluráðgjafi HTH innréttinga á Akureyri
Ormsson óskar eftir að ráða söluráðgjafa til að annast hönnun og sölu á HTH innréttingum í nýrri verslun okkar á Norðurtorgi, Akureyri.
HTH er einn stærsti framleiðandi innréttinga í Evrópu, enda er dönsk hönnun og hugvit mikils metin og danskt handverk eftirsótt um allan heim.
Við leitum eftir drífandi og skapandi einstaklingi sem hefur metnað fyrir því að ná árangri í skemmtilegu starfsumhverfi með góðu samstarfsfólki.
Menntun í innanhússarkitektúr sem og reynsla af hönnun og sölumennsku æskileg.
Um framtíðarstarf er að ræða. Fullt starf eða hálft starf kemur til greina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun og teikning innréttinga
- Þjónusta og söluráðgjöf til einstaklinga og verktaka
- Tilboðsgerð, eftirfylgni með sölu og samningagerð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Innanhússarkitektúr eða sambærileg menntun æskileg
- Góð tölvukunnátta og reynsla af sölumennsku
- Rík þjónustulund og samskiptahæfni
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í starfi
- Skipulögð og vönduð vinnubrögð
Advertisement published23. July 2025
Application deadline17. August 2025
Language skills

Required

Required
Location
Norðurtorg, Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Þjónusta í apóteki - Bíldshöfði
Apótekarinn

Sölustarf í Herrafataverslun Stout XL-8XL
Stout herrafataverslun

Verslunarstörf í ELKO Lindum
ELKO

Hlutastarfsmaður í gleraugnaverslun Eyesland Kringlunni
Eyesland Gleraugnaverslun

Ráðgjafi við söludeild flutningalausna
Eimskip

Söluráðgjafi rafbúnaðar Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Söluráðgjafi hjá Brimborg Akureyri
Brimborg

Egilsstaðir: Söluráðgjafi í verslun
Húsasmiðjan

Ráðgjafi í Reykjanesbæ
Sjóvá

Þjónustufulltrúi
Petmark ehf

Apótekarinn Akureyri (Hrísalundur)
Apótekarinn

Viltu vinna í líflegu og jákvæðu umhverfi með góðu teymi?
Polarn O. Pyret