

Mótaðu framtíð þekkingar með okkur - verkefnastjóri óskast
Mótaðu framtíð þekkingar með okkur. Opni háskólinn í HR leitar að öflugum verkefnastjóra. Í deildinni starfa fimm verkefnastjórar sem eru hluti af öflugu teymi Opna háskólans. Starfið felur í sér ábyrgð á þróun og umsjón námskeiða Opna háskólans í HR, bæði staðnámskeiða og stafrænna fræðslulausna fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Verkefnastjóri heyrir undir forstöðumann Opna háskólans og vinnur í teymi með öðru starfsfólki einingarinnar. Við leitum að aðila með ríka þjónustulund, sem vinnur vel í teymi en getur einnig unnið sjálfstætt.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur umsjón með tilteknum námskeiðum og viðburðum
- Þarfagreining og þróun námskeiða í samstarfi við akademískar deildir háskólans, fagfélög, fyrirtæki og stofnanir.
- Skipulagning og framkvæmd námskeiða
- Samskipti við viðskiptavini og kennara
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur
- Góð þekking og skilningur á upplýsingatækni
- Fagmennska
- Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf
Umsóknarfrestur er til og með 3. maí
Nánari upplýsingar um starfið veita Ingunn S. Unnsteinsd. Kristensen, forstöðumaður Opna háskólans ([email protected]) eða Elísabet Jóhannesdóttir, mannauðssérfræðingur ([email protected]).
English
Icelandic










