Aðalþing leikskóli
Aðalþing leikskóli
Aðalþing leikskóli

Útinámskennari í leikskólann Aðalþing

Leikskólinn Aðalþing auglýsir eftir útinámskennara 100% starf frá 5. ágúst eða fyrr samkvæmt samkomulagi.

Leikskólinn Aðalþing leitar að áhugasömum og skapandi útinámskennara til starfa. Um er að ræða spennandi starf fyrir einstakling sem hefur brennandi áhuga á útikennslu, náttúruupplifun og heildrænni nálgun í starfi með börnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulag og framkvæmd útináms með öllum börnum leikskólans
  • Að nýta nærumhverfi og náttúru í námi og leik
  • Samstarf við annað starfsfólk leikskólans
  • Þátttaka í þróun skólastarfsins með áherslu á útinám og hæglátt leikskólastarf

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun æskileg
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Áhugi og þekking á útinámi og útiveru
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð samskiptahæfni
  • Jákvætt viðhorf og sveigjanleiki í starfi

Leikskólinn Aðalþing starfar í anda Reggio Emilia hugmyndafræðinnar og er hátt hlutfall starfsmanna með kennaramenntun. Skólinn er rekinn af hópi kennara við skólann og höfum við mikinn áhuga á að stækka kennarahópinn okkar.

Viðvera í skólanum í 100% starfi er sex tímar á dag ef þú ert með kennsluréttindi. Allir kennarar við skólann hafa tvo undirbúningstíma daglega.

Leikskólinn Aðalþing er þátttakandi í Stillu, sem er þriggja ára þróunarverkefni um hæglátt leikskólastarf. Við erum einnig í samstarfi við Reggio Emilia um að þróa sameiginlega námskrá um mat og matmálstíma í leikskólum. Í vor förum við í námsferð til Mílanó og þar munum við meðal annars hitta þátttökuskólana í þessu verkefni.

Árlegar námsferðir okkar hafa skilað frjóu, framúrskarandi skólastarfi og góðum starfsanda. Tilgangur árlegra námsferða erlendis er að afla okkur nýrrar þekkingar, kynnast skólastarfi og námsumhverfi á öðrum vettvangi, sem og að styrkja starfsfólkið sem hóp.

Allur matur í Aðalþingi er unninn frá grunni og í mars 2024 varð Aðalþing fyrsta skólaeldhúsið á Íslandi til að fá Svansvottun.

Árið 2022 varð Aðalþing fyrsti leikskólinn til að hljóta Íslensku menntaverðlaunin, fyrir framúrskarandi skólastarf og lýðræðislega starfshætti. Árið 2023 varð Aðalþing svo fyrsti leikskólinn til að hljóta Orðsporið fyrir framsækið skólastarf og metnað í starfsþróun og umbótastarfi. Einnig fyrir að ráðast i fjölda þróunarverkefna og viðhafa lýðræðislega starfshætti i öllu starfi leikskólans.

Núna er rétti tíminn til að hugsa sér til hreyfings og taka ákvörðun um að njóta þess að vinna með mörgum öðrum kennurum!

Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.

Nánari upplýsingar gefur Agnes Gústafsdóttir skólastjóri á [email protected] eða í síma 5150930.

Helstu verkefni og ábyrgð
    • Skipulag og framkvæmd útináms með öllum börnum leikskólans
    • Að nýta nærumhverfi og náttúru í námi og leik
    • Samstarf við annað starfsfólk leikskólans
    • Þátttaka í þróun skólastarfsins með áherslu á útinám og hæglátt leikskólastarf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða annað kennarapróf
  • Skapandi hugsun og metnaður í starfi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og samstarfshæfni
  • Hæfileiki til að vera þátttakandi í lærdómssamfélagi í þróun
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
Advertisement published22. April 2026
Application deadline3. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Aðalþing 2, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Teacher
Professions
Job Tags