

Tónmenntakennari skólaárið 2026-2027 í Selásskóla
Óskum eftir tónmenntakenna í Selásskóla í 60 til 80 % starf frá og með 1. ágúst 2026. Í starfinu felst almenn tónmenntakennsla auk þess að sjá um ýmsar viðburði eins og jólaskemmtun og söng á sal.
Selásskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Í skólanum eru um 200 nemendur og um 40 starfsmenn. Kjörorð skólans er: Látum þúsund blóm blómstra og gildisáherslur hans eru: Virðing – gleði - vinátta. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur áherslu á lestur/læsi, sköpun, teymiskennslu og upplýsingatækni. Enn fremur umhverfismennt með það að markmiði að nemendur skilji, þekki og virði umhverfi sitt og náttúru.
- Annast tónmenntakennslu nemenda í samráði við samkennara og skólastjórnendur.
- Uppsetning á tónverkum í tengslum við leiksýningar.
- Vinna með stjórnendum og samstarfsmönnum að því að þróa framsækið og faglegt skólastarf með áherslu á samþættingu námsgreina og fjölbreytta kennsluhætti
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
· Sérmenntun í verk-og listgreinum með áherslu á tónmennt.
· Færni í píanóleik
· Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
· Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
Framúrskarandi hæfni í íslensku skilyrði
Sundkort, líkamsræktunarstyrkur
Icelandic










