

Leikskólakennari
Leikskólinn Bláskógar auglýsir eftir leikskólakennara til starfa í 100% stöðu. Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af skólastefnu Sveitarfélagsins Bláskógabyggðar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla sem og öðrum lögum er við eiga.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Félags leikskólakennara en tímabundin viðbótarlaun greiðast vegna átaksverkefnis til að fjölga leikskólakennurum. Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í uppeldi og menntun leikskólabarna.
- Að fylgjast með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins.
- Þátttaka í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og faglegum verkefnum.
- Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Þátttaka í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum.
- Að gæta að öryggi leikskólabarna, menntun, þroska þeirra og líðan.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara, sbr. lög nr. 95/2019, III kafli 9. grein og IV kafli 20. grein.
- Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni og áhugi í starfi með börnum.
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
- Færni í ræðu og riti.
- Góð íslenskukunnátta æskileg.
Fríðindi í starfi
- Tímabundin viðbótarlaun
- Yfirvinnugreiðslur (6 klst.)
- Ívilnun vegna aksturs
- Fatastyrkur
- Frítt fæði
- Stytting vinnuvikunnar
- Sund/líkamsræktarkort Bláskógabyggðar
- Skapandi starfsumhverfi
Advertisement published20. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
Location
Skólavegur 13, 806 Reykholt
Lindarbraut 6, 840 Laugarvatni
Type of work
Skills
General computer knowledgeProactivePositivityTeacherHuman relationsIndependencePlanningTeam work
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Deildarstjóri og leikskólakennari óskast til starfa við Brúarásskóla
Brúarásskóli

Kennari á yngstastigi í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli

Heimilisfræðikennari óskast til starfa í Árbæjarskóla
Árbæjarskóli

Leikskólakennari hjá leikskólanum Álfheimum
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Sérkennslustjóri hjá leikskólanum Álfheimum
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Leikskólinn Klappir: Leikskólakennari eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Akureyri

Deildarstjóri hjá leikskólanum Álfheimum
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Kennarastöður við Flóaskóla
Flóaskóli

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Leikskólakennarar
Leikskólinn Hulduheimar

Leikskólakennari - Regnboginn leikskóli
Regnboginn

Leikskólakennari á Hnoðraból
Borgarbyggð