Leikskólinn Bláskógar
Leikskólinn Bláskógar
Leikskólinn Bláskógar

Aðstoðarleikskólastjóri

Leikskólinn Bláskógar auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra til starfa í 100% stöðu á starfsstöðinni Gullkistunni á Laugarvatni.

Aðstoðarleikskólastjóri er faglegur leiðtogi og situr í stjórnendateymi leikskólans. Hann starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af skólastefnu Bláskógabyggðar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Leikskólinn Bláskógar er sex deilda leikskóli með starfsemi á tveimur stöðum: Álfaborg í Reykholti og Gullkistunni á Laugarvatni. Í Álfaborg eru fjórar deildir: Hverahlíð, Krummaklettar, Lambadalur og Smáholt. Í Gullkistunni eru tvær deildir: Bjarnalundur og Stóragil.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Félags stjórnenda leikskóla en tímabundin viðbótarlaun greiðast vegna átaksverkefnis til að fjölga leikskólakennurum. Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins 
  • Ábyrgð á, í samstarfi við leikskólastjóra, að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans
  • Samskipti og samvinna við foreldra í samráði við leikskólastjóra
  • Þátttaka í foreldrafundum, starfsmannafundum, og deildarstjórafundum 
  • Aðstoðarleikskólastjóri er staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara, sbr. lög nr. 95/2019, III kafli 9. grein og IV kafli 20. grein 
  • Menntun og/eða reynsla af stjórnun æskileg 
  • Reynsla, áhugi og hæfni í starfi með börnum 
  • Góð færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Góð íslenskukunnátta, í ræðu og riti 
  • Góð tölvukunnátta  
Fríðindi í starfi
  • Tímabundin viðbótarlaun 
  • Yfirvinnugreiðslur (6 klst.) 
  • Ívilnun vegna aksturs 
  •  Fatastyrkur 
  • Frítt fæði 
  •  Stytting vinnuvikunnar 
  • Sund/líkamsræktarkort Bláskógabyggðar 
Advertisement published7. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Lindarbraut 6, 840 Laugarvatni
Leikskólinn Álfaborg, 806 Reykholti
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Conscientious
Work environment
Professions
Job Tags