Rarik ohf.
Rarik ohf.
Rarik ohf.

Leiðtogi landupplýsingateymis

Við leitum að öflugum sérfræðingi til að taka þátt í uppbyggingu og þróun landupplýsingakerfa hjá Rarik. Um er að ræða lykilhlutverk í teymi sem er í mótun, þar sem viðkomandi mun leiða teymið og vinna náið með samstarfsaðilum að áframhaldandi þróun ArcGIS-umhverfis hjá Rarik. Jafnframt erum við að innleiða Utility Network fyrir raf- og hitaveitu, sem er eitt stærsta þróunarverkefni í landupplýsingum innan fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Landupplýsingateymi Rarik er gríðarlega mikilvægt þegar kemur að utanumhaldi allra okkar verkefna og eigna, framsetningu upplýsinga og framtíðaráforma sem tengjast orkuskiptum og notkun gervigreindar. Við leitum að leiðtoga sem getur stutt við uppbyggingu landupplýsingateymisins og stýrt innleiðingu og þróun á Utility Network. Á meðal verkefna eru samhæfing vinnu milli notenda, tæknifólks og ytri samstarfsaðila og þátttaka í greiningu, hönnun og umbótum á landupplýsingalausnum. Mikilvægt er að rétta manneskjan í starfið kunni þá list að stuðla að góðu samstarfi, þekkingarmiðlun og faglegum vinnubrögðum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Sérfræðingur í landupplýsingateymi þarf að hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi og þekkingu og reynslu af landupplýsingakerfum. Reynsla af vinnu með gagnagrunna og tæknilegar lausnir er kostur, sem og reynsla af verkefna- og/eða teymisstjórn. Við leitum sérstaklega eftir fólki með gott frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og framúrskarandi samskiptafærni.

Advertisement published20. April 2026
Application deadline10. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Óseyri 3, 603 Akureyri
Hamraendar 2, 340 Stykkishólmur
Dvergshöfði 2, 110 Reykjavík
Þverklettar 2, 700 Egilsstaðir
Larsenstræti 4, 800 Selfoss
Type of work
Professions
Job Tags