Norðurál
Norðurál
Norðurál

Áreiðanleikafræðingur

Norðurál leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf áreiðanleikafræðings. Eitt af meginhlutverkum áreiðanleikafræðings er að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum til að auka áreiðanleika búnaðar og halda bilunum í lágmarki með öryggi, skilvirkni og hagkvæmni að leiðarljósi. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.

Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Gerð fyrirbyggjandi viðhaldsáætlana fyrir framleiðslubúnað

·       Rýni á viðhaldskerfi til að greina tækifæri til umbóta

·       Rótargreiningar á bilunum í búnaði

·       Greining gagna, skýrslugerð og tölfræðileg úrvinnsla

·       Þróun lykilmælikvarða

·       Tæknilegur stuðningur við undirbúning og lokaúttektir á nýjum búnaði

·       Gæðaeftirlit og tæknilegur stuðningur við verkáætlanadeild og viðhaldsteymi

·       Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði

·       Sveinspróf í raf- eða vélvirkjun er kostur

·       Góð tölfræðikunnátta og greining gagna

·       Sterk öryggisvitund, frumkvæði og fagleg vinnubrögð

·       Þekking á SAP tölvukerfi er kostur

·       Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar

Advertisement published21. April 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.SAPPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Professions
Job Tags