VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur í lögnum og loftræsikerfum

​Vilt þú taka þátt í að bæta innivist og orkunýtingu? Við leitum að öflugum sérfræðingi við hönnun og ráðgjöf vegna lagna- og loftræsikerfa.

Um starfið
Sem sérfræðingur við hönnun lagna- og loftræsikerfa munt þú vinna við:

  • Lagna- og loftræsihönnun: Hönnun allra helstu lagna- og loftræsikerfa ásamt almennri ráðgjöf og eftirfylgni á byggingartíma.
  • Hönnun veitulagnakerfa: Hönnun hitaveitu- og vatnsveitukerfa.
  • Áætlanagerð: Gerð kostnaðaráætlana, hönnunar- og verkáætlana, orkuútreikninga o.fl. vegna lagna- og loftræsikerfa.
  • Faglegt samstarf: Fagleg samskipti og teymisvinna með hönnuðum annarra fagsviða, verkkaupa, verktaka og öðrum hagsmunaaðilum.
  • Gerð útboðsgagna: Gerð verklýsinga og annarra gagna fyrir útboð lagna- og loftræsikerfa.
  • Önnur skýrslugerð: Ýmsar greiningar og gagnaúrvinnsla á fagsviði lagna- og lofræsikerfa.

Hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi eiginleika og færni:

  • Menntun: Menntun á sviði verkfræði eða tæknifræði, með áherslu á lagna- og loftræsikerfi.
  • Reynsla: A.m.k. 3ja ára reynsla af verkfræðistörfum á fagsviði lagna- og loftræsikerfa. Reynksa af hönnun hitaveitulagna er kostur.
  • Hugbúnaðarþekking: Góð þekking á Autodesk Revit er skilyrði.
  • Samskiptahæfni: Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi, jákvæðni og góð samskiptafærni.
  • Tungumálakunnátta: Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli. Kunnátta í a.m.k. einu skandinavísku tungumáli er kostur.

Hvað bjóðum við
Við leggjum áherslu á að skapa jákvætt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til persónulegrar og faglegrar þróunar í starfi. Meðal þess sem við bjóðum er:

  • Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi.
  • Tækifæri til að vinna að mikilvægum og áhrifamiklum uppbyggingarverkefnum.
  • Sveigjanleiki í vinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
  • Líflegt félagsstarf.

Kynntu þér starfið nánar á www.vso.is/starfsumsokn/

Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið [email protected], merktar Lagnir.

Advertisement published19. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 20, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Work environment
Professions
Job Tags