Verksýn
Verksýn

Byggingafræðingur / Byggingatæknifræðingur

Verksýn óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf byggingafræðings/byggingartæknifræðings, til að sinna fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ástandsgreiningar á mannvirkjum og hönnun endurbóta
  • Umsjón með verk- og kostnaðaráætlunum ásamt kostnaðareftirliti
  • Gerð útboðs- og verklýsinga
  • Verkefnastjórnun, undirbúningur og skipulag
  • Almenn framkvæmdaráðgjöf og eftirlit
  • Samskipti við verkkaupa, verktaka og aðra hagsmunaaðila

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði bygginga- eða tæknifræði
  • Aðilar með skylda menntun, s.s. iðnfræði, arkitektúr, verkfræði eða reynslumiklir iðnmeistarar koma einnig til greina
  • Reynsla af verkefnastjórnun á sviði framkvæmda er kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Um Verksýn:
Verksýn var stofnað árið 2006 og hefur síðan þá veitt sérhæfða ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum. Fyrirtækið vinnur einnig að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf í tengslum við nýframkvæmdir.
Markmið Verksýnar er að mæta þörfum viðskiptavina sinna á sem besta mögulegan hátt, stuðla að auknum gæðum húsnæðis á Íslandi og safna og miðla af þekkingu á viðhaldi og endurbótum fasteigna.

Verksýn er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem starfar þéttur hópur reynslumikilla sérfræðinga í góðu vinnuumhverfi.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Advertisement published17. April 2026
Application deadline10. May 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Síðumúli 134664, 320 Reykholt í Borgarfirði
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ArchitecturePathCreated with Sketch.Construction engineerPathCreated with Sketch.Industrial technicianPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Master craftsmanPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Engineer
Professions
Job Tags