Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Teymisstjóri í byggingardeild

Deild byggingarmála veitir borgarbúum, borgarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum og verktökum upplýsingar og ráðgjöf um byggingarmál. Auk þess vinnur deildin úr erindum sem berast byggingarfulltrúa, annast yfirferð aðal- og séruppdrátta, útgáfu byggingarleyfa, eftirlit með byggingarleyfiskyldum framkvæmdum og annast samráð við opinbera umsagnaraðila, almenning og aðra hagaðila skv. ákvæðum laga og reglugerða.

Við leitum að lausnarmiðuðum einstaklingi með ríka samskiptahæfileika, frumkvæði og þjónustumiðaða hugsun, sem hefur áhuga á nýsköpun og vilja til að taka þátt í að styðja við byggingarmál í Reykjavík. Starf teymisstjóra hefur snertifleti við fjölmarga aðila sem koma að spennandi uppbyggingu borgar.

Teymisstjóri styður verkefnastjóra í verkefnum teymis og er leiðandi í að tryggja samræmi við stefnur Reykjavíkurborgar og samráð við hagaðila. Teymisstjóri hefur umboð til að úthluta verkefnum innan teymis og kalla eftir aðstoð annars starfsfólks/annarra teyma á skrifstofunni.

Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á þverfaglega teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu. Næsti yfirmaður er deildarstjóri byggingarmála.

    Helstu verkefni og ábyrgð
    • Hefur forystu um faglega verkefnastjórnun og framþróun hennar í teyminu og styður verkefnastjóra eins og þörf er á.
    • Yfirsýn framvindu og kostnaðaráætlana verkefna, verklagi, eftirfylgni og upplýsingaflæði.
    • Leiðandi hlutverk við mótun og framfylgd gæðamála og stefnu Reykjavíkurborgar.
    • Verkefnastjórnun, upplýsingagjöf til hagaðila og kynning og eftirfylgni verkefna
    • Stuðningur við deildarstjóra við útdeilingu, forgangsröðun, samræmingu og áætlanagerð verkefna og verkþátta.
    • Hefur yfirsýn yfir verkstöðu og aðkeypta þjónustu vegna verkefna teymisins og hefur samráð við deildarstjóra við gerð fjárhagsáætlana.
    • Hefur umsjón með samningum í verkefnum teymisins, kostnaðaráætlunum, framvindureikningum og lokauppgjöri er heyra undir verkefni teymisins.
    • Hluti af starfi teymisstjóra er að fara í öryggis- og lokaúttektir
    • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra/skrifstofustjóra.
    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Framhaldsmenntun í verkfræði, tæknifræði, arkitektúr, byggingarfræði eða sambærilegum greinum á háskólastigi sem nýtast í starfi.
    • Löggilding hönnuðar á sínu starfssviði og a.m.k. eins árs reynslu sem löggiltir hönnuðir af störfum.
    • A.m.k. fimm ára reynsla á starfssviðinu.
    • Þekking og reynsla af byggingartengdum verkefnum á stjórnsýslustigi.
    • Reynsla af verkefnastjórnun.
    • Frumkvæði í starfi, framsýni, skipulagsfærni og góð yfirsýn á verk og verkþætti.
    • Leiðtogahæfileikar, stefnufesta og lipurð í mannlegum samskiptum.
    • Góð færni í textagerð og framsetningu gagna, sem og í framsögu og kynningum. Góð tæknikunnátta.
    • Íslenskukunnátta C1-C2 í samræmi við í samevrópska tungumálarammann og enskukunnátta C1.
    Advertisement published13. April 2026
    Application deadline24. April 2026
    Language skills
    IcelandicIcelandic
    Required
    Advanced
    EnglishEnglish
    Required
    Intermediate
    Location
    Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
    Type of work
    Skills
    PathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Project management
    Professions
    Job Tags