

Sérfræðingur vélbúnaðar
Norðurál leitar að öflugum einstaklingi í starf sérfræðings á sviði vélbúnaðar. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins.
· Tæknilegur stuðningur og ráðgjöf vegna viðhalds og reksturs á vélbúnaði
· Hönnun og eftirfylgni með breytingum á vélbúnaði
· Þátttaka í verkefnum um aukna sjálfvirkni vélbúnaðar
· Samskipti við framleiðsludeildir og framleiðendur búnaðar
· Verkefnastjórnun við breytingar og nýfjárfestingar
· Önnur tilfallandi verkefni
· Háskólamenntun á sviði vélaverkfræði/-tæknifræði
· Sveinspróf í vélvirkjun er kostur
· Sterk öryggisvitund, frumkvæði og fagleg vinnubrögð
· Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
· Reynsla af rekstri eða hönnun á vélbúnaði er kostur











