Garðabær
Garðabær
Garðabær

Krakkakot leitar að viðbót við flottan starfsmannahóp

Leikskólinn Krakkakot auglýsir eftir starfskrafti í 100% stöðu. Krakkakot er sex deilda leikskóli og er hann staðsettur á Álftanesi/Garðabæ. Uppeldis og agastefna skólans er "Uppeldi til ábyrgðar". Helsta náms- og þroskaleið barna er hinn frjálsi og sjálfssprottni leikur og er leiknum gefið mikið rými í dagskipulagi skólans. Skólinn er hlýlegur og er lögð mikil áhersla á heimilislegt umhverfi og kærleiksrík samskipti sem einkennast af virðingu fyrir börnum, starfsfólki og foreldrum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla

*Fáist ekki einstaklingur með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntað starfsfólk tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði og góð samskiptahæfni
  • Vera tilbúinn að fylgja stefnu skólans, að vinna með öðrum og um leið búa yfir frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt
Hlunnindi í starfi
  • Á Krakkakoti er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrarfría, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar.
  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
  • 0,25% stöðugildi vegna snemmtækra íhlutunar inn á hverri deild.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16.30 mánud-fimmtud og 7:30-16:00 á föstudögum.
  • Fimm skipulagsdagar á ári.
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.
Advertisement published10. December 2024
Application deadline27. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags