Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Staða stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Um er að ræða u.þ.b. 80% starf yfirstandandi skólaár. Í skólanum eru rúmlega 200 börn í 1. - 10. bekk. Leitað er að einstaklingi sem er reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.grunnrey.is

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Námslegur stuðningur við nemendur á mið- og unglingastigi með áherslu á íslensku, stærðfræði og raungreinar.
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við bekkjarkennara og foreldra.
  • Hefur hagsmuni nemenda að leiðarljósi, sýnir hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
  • Stuðningsfulltrúi starfar undir stjórn deildarstjóra sérkennslu í samvinnu við bekkjarkennara.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Faglegur styrkleiki í íslensku, stærðfræði og tungumálum.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
Advertisement published19. December 2024
Application deadline3. January 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags