Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á helgarvaktir
Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á helgarvaktir
36 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonum í hlutastarf á helgarvaktir.
Æskilegt er að viðkomandi sé 35 ára eða eldri. Eldri konur sérstaklega velkomnar.
Konan er á einhverfurófi og felst starfið í aðstoða við daglegar athafnir og veita henni félagsskap.
Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur, ýmis önnur handavinna og söngur. Gott er að aðstoðarkonan hafi einnig áhuga á handavinnu.
Athugið að á heimilinu er lítill hundu/hvolpur.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.
Vaktirnar sem um ræðir eru fjórðu hverja helgi s.s. sirka eina helgi í mánuði.
Það er þá
- Föstudag og laugardag 17-23 og sunnudag 20:30-23:30
og svo
- Laugardag eða sunnudag 11-16.
Hæfniskröfur:
- Þolinmæði.
- Frumkvæði.
- Góð samskiptahæfni.
- Að vera hvetjandi og skapandi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði.
- Íslenskukunnátta er skilyrði.
- Bílpróf og aðgengi að bíl er skilyrði.
Starfið hentar mjög vel með skóla eða annarri vinnu.
- góð íslenskukunnátta