Kona sem kann að prjóna eða hekla óskast í sumarstarf
Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast í sumarstarf
36 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonum í sumarstarf.
Æskilegt er að viðkomandi sé 35 ára eða eldri. Eldri konur sérstaklega velkomnar.
Konan er á einhverfurófi og felst starfið í aðstoða við daglegar athafnir og veita henni félagsskap.
Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur, ýmis önnur handavinna og söngur. Gott er að aðstoðarkonan hafi einnig áhuga á handavinnu.
Athugið að á heimilinu er lítill hundu/hvolpur.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.
Um er að ræða starf yfir sumarið í sumarafleysingum og einnig er í boði afleysingar yfir vetrartíma ef viðkomandi vill.
Vaktirnar eru ýmist 8-12, 9-13 eða 17-23 á virkum dögum, svo 11-16 og 17-23 á laugardögum, og svo 11-16 og 20:30-23:30 á sunnudögum.
Hæfniskröfur:
- Þolinmæði.
- Frumkvæði.
- Góð samskiptahæfni.
- Að vera hvetjandi og skapandi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði.
- Íslenskukunnátta er skilyrði.
- Bílpróf og aðgengi að bíl er skilyrði.
Starfið hentar mjög vel með skóla eða annarri vinnu.
- góð íslenskukunnátta