Hlutastarf - fjölbreytt verkefni
ATH ekki er boðið upp á fjarvinnu!
Við hjá Símstöðinni aðstoðum ýmis góðgerðarfélög í úthringiverkefnum til fjáröflunar allt árið um kring. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur á öllum aldri og vegna aukinna verkefna viljum við bæta öflugum sölufulltrúum við teymið okkar.
Starfið felst í úthringingum til einstaklinga en málefnin geta verið mörg og mismunandi.
50%-70% starf er í boði fyrir rétta aðila. Greitt er tímakaup og bónusar fyrir góðan árangur. Vaktir eru 4-6 tímar (lágmark tvisvar í viku).
Opnunartímar:
- Mánud-Fimmtud kl. 10:00 - 19:00
- Föstud kl. 10:00 - 15:00
Hæfniskröfur:
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Íslenska sem móðurmál er skilyrði / You need to be fully fluent in Icelandic
- Lágmarksaldur er 18 ára
Við gerum ekki kröfu um sölureynslu því starfsfólkið okkar fær sérsniðna og góða kennslu áður en það hefur störf.
Aðeins þeir sem eru með hreint sakavottorð koma til greina.
Endilega sendið okkur umsókn eða hafið samband ef þið eruð með einhverjar spurningar.