

Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa í krabbameinsþjónustu Landspítala. Um er að ræða dagvinnu með breytilegum vinnutíma í 80-100% starfshlutfalli við hjúkrun sjúklinga í krabbameinsmeðferð/ þjónustu.
Við veitum fjölbreytta þjónustu við sjúklinga með krabbamein, bæði í lyfja- og geislameðferð og vinnum í virku teymi með öðrum fagstéttum. Unnið er að uppbyggingu og þróun hjúkrunar fyrir þennan sístækkandi sjúklingahóp með gott flæði og samfellda þjónustu milli eininga með sjúklinginn í öndvegi.
Í boði er starf á:
- Geislameðferðardeild 10K
- Dag- og göngudeild 11B, lyfjameðferð
- Blandað starf á báðum deildum, 10K og 11B
Við bjóðum upp á einstaklingshæfða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum. Að auki er á krabbameinsþjónustunni reglulega boðið upp á fræðslu fyrir starfsfólk. Á deildinni eru góðir möguleikar á fjölbreyttri starfsþróun og þátttöku í þróunarverkefnum í hjúkrun sjúklinga með krabbamein.
Upphaf starfs er 1. ágúst 2025 eða skv. samkomulagi. Næsti yfirmaður er deildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Þórunni deildarstjóra.
Öflugt félagslíf er innan krabbameinsþjónustu, það eru gönguhópar, sjósundshópur, hamingjustundir og góð þátttaka í jólaboði deildarinnar og vorfagnaði LSH. Við leggjum mikla áherslu á samheldni og góðan starfsanda meðal starfsfólks þjónustunnar.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.























































