Icelandair
Icelandair
Icelandair

Health Manager

Health Manager – Vilt þú hafa áhrif á heilsu og vellíðan starfsfólks Icelandair?

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í stöðu Health Manager til að leiða stefnumótun og framkvæmd heilsutengdra verkefna innan félagsins. Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í að byggja upp vinnuumhverfi þar sem heilsuefling, forvarnir og vellíðan eru í forgrunni, í nánu samstarfi við mannauðsteymi og stjórnendur.

Við bjóðum spennandi og krefjandi starf með tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á líðan starfsfólks og byggja upp vinnustaðarmenningu sem stuðlar að heilbrigði. Health Manager starfar innan öflugs teymis þar sem mannauður og velferð eru í brennidepli.

Ábyrgðarsvið:

  • Umsjón og eftirfylgni með heilsu- og viðverustefnu félagsins.
  • Framfylgja ákveðnum flugtengdum reglugerðum og áætlunum um öryggi og heilbrigði.
  • Umsjón með samstarfssamningum við samstarfsaðila í heilbrigðismálum og samskipti við þá aðila.
  • Ráðgjöf og stuðningur til starfsfólks og stjórnenda um heilsu og vellíðan
  • Skipulagning og framkvæmd heilsueflandi verkefna og fræðslu
  • Greining og vöktun á veikindatölfræði og þróun úrbótaverkefna
  • Þátttaka í mótun mannauðsstefnu, með áherslu á vellíðan starfsfólks
  • Önnur mannauðstengd verkefni

Hæfni og menntun:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á vinnuvernd er kostur
  • Reynsla af heilsueflingu og forvarnarstörfum er æskileg
  • Reynsla af flugtengdum störfum er kostur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni

Við bjóðum sveigjanleika, tækifæri til þróunar og vinnuumhverfi sem hlúir að starfsfólki.

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

Umsóknir óskast ásamt ferilskrá og kynningarbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025.

Nánari upplýsingar veita:

Sveina Berglind Jónsdóttir, Director People Operations, [email protected]

Elmar Bergþórsson, People & Talent Manager, [email protected]

Health Manager – Would you like to make a real impact on employee health and wellbeing at Icelandair?

We are looking for a driven and ambitious individual to take on the role of Health Manager, leading the design and implementation of health-related initiatives within the company. You will play a key role in creating a workplace environment where wellness, prevention, and employee wellbeing are prioritized – in close collaboration with the People & Culture team and leadership.

We offer an exciting and challenging role with the opportunity to make a real difference in employee wellbeing and help shape a workplace culture that supports health and balance.

Key Responsibilities:

  • Oversee and follow up on company’s health and attendance policies.
  • Enforce specific aviation-related regulations and plans regarding safety and health
  • Communication with occupational health providers and manage medical consultation services.
  • Provide guidance and support to employees and managers on health and well-being matters.
  • Planning and implementation of health promotion initiatives and educational activities
  • Monitor and analyze sickness absence data and develop relevant improvement actions.
  • Participation in the development of HR strategy with a focus on employee wellbeing
  • Other HR-related tasks as required

Qualifications and Skills:

  • University education relevant to the role
  • Knowledge of occupational health and safety is an advantage
  • Experience in health promotion and preventive work is desirable.
  • Experience in aviation-related roles is a plus.
  • Excellent interpersonal and teamwork skills.
  • Initiative, independence, and strong organizational abilities.

We offer flexibility, development opportunities, and a supportive work environment.

Icelandair‘s policy promotes equality and diversity among employees and encourages individuals of all genders to apply.

Please submit your application along with a CV and cover letter no later than 15th of June 2025.

For further information, please contact:

Sveina Berglind Jónsdóttir, Director People Operations, [email protected]

Elmar Bergþórsson, People & Talent Manager, [email protected]

Advertisement published2. June 2025
Application deadline15. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Flugvellir 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags