Per mentis
Per mentis
Per mentis

Hjúkrunarfræðingur á geðlækningastofu (80-100%)

Per mentis óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing með reynslu af geðlækningum fullorðinna. Um er að ræða dagvinnustarf við greiningu og meðferð geðsjúkdóma. Unnið er í nánu teymi með geðlæknum, sálfræðingum, öðrum hjúkrunarfræðingum og fleiri starfsstéttum. Helstu áhersluatriði innan geðlækninga eru taugaþroskaraskanir (t.d. ADHD) og lyndisraskanir (t.d. geðhvarfasýki, bipolar), en stofan tekur að sér allar almennar geðlækningar.

Starfshlutfall er 80-100%

Hópurinn telur í dag tvo geðlækna (þar af er annar framkvæmdastjóri), þrjá sálfræðinga, tvo hjúkrunarfræðinga, skrifstofustjóra, fjármálafulltrúa og lausráðna verktaka í hugbúnaðarþróun, grafískri hönnun o.s.frv. Við óskum nú eftir að ráða þriðja hjúkrunarfræðinginn.

  • Góð laun, afkastatengt bónuskerfi, fríðindi á borð við ókeypis mat í hádeginu
  • Dagvinna með sveigjanlegum vinnutíma og möguleika á fjarvinnu að hluta
  • Sjálfstæð sjúklingamóttaka með stuðningi teymis
  • Góð vinnuaðstaða
  • Við höfum lagt mikið upp úr því að sjálfvirknivæða ferla þar sem það á við, draga úr handtökum sem tölva getur gert fyrir okkur og höfum virka hugbúnaðarþróun
Helstu verkefni og ábyrgð

Sjúklingamóttaka fullorðinna með geðvanda. Greining og meðferð.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
  • Gott viðmót, lipurleiki og geta til þess að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Reynsla af starfi með skjólstæðingum með geðvanda
Fríðindi í starfi
  • Góð laun, afkastatengt bónuskerfi
  • Ókeypis matur í hádeginu
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Möguleiki á fjarvinnu að hluta
Advertisement published28. May 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Optional
Intermediate
Location
Síðumúli 23, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.NursePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags