

Tanntæknir-aðstoðarmanneskja tannlæknis
Tannprýði í Kópavogi óskar eftir frábærum liðsfélaga! 😁🦷
Langar þig að vinna í hlýlegu og lifandi umhverfi þar sem bros, fagmennska og samvinna eru í hávegum höfð?
Tannlæknastofan Tannprýði leitar að framtíðarstarfsmanni sem hefur áhuga á heilsu, fólki og góðu andrúmslofti.
Reynsla af störfum á tannlæknastofu er kostur en alls ekki skilyrði!
Við sjáum um að kenna þér allt sem þú þarft að kunna
________________________________________
Hvað bíður þín?
🦷 Aðstoð við fjölbreyttar tannlækningar
🧼 Umsjón með hreinlætisaðgerðum og sótthreinsun
🤝 Þátttaka í öflugu teymi fagfólks sem styður hvort annað
🌟 Starfsumhverfi þar sem bros og jákvæðni skipta máli
________________________________________
Ert þú?
✅ Þjónustulipur og samviskusöm/samur
✅ Áreiðanleg(ur), Dugleg(ur), nákvæm(ur) og sjálfstæð(ur)
✅ Talar íslensku
✅ Getur unnið undir álagi og leyst verkefni með jákvæðu viðhorfi
✅ Opin(n) fyrir nýjum áskorunum og tilbúin(n) að læra
________________________________________
Af hverju Tannprýði?
Við erum samheldin og kraftmikil tannlæknastofa þar sem allir fá að njóta sín.
Við trúum því að gott andrúmsloft skapi betri þjónustu. Fyrir bæði starfsfólk og skjólstæðinga.
Þér verður tekið opnum örmum og þú færð góða aðlögun og þjálfun.
Gert er ráð fyrir að störf hefjist 22.september
________________________________________
🎯 Sækja um?
Sendu tölvupóst á [email protected] þar sem þú segir okkur aðeins frá þér. Við hlökkum til að heyra frá þér!
- Aðstoða tannlækni við stól, sótthreinsun. Einnig ýmisleg klínísk vinna með sjúklingum þar sem sjálfstæð vinnubrögð eru mikill kostur.
- Menntun og reynsla sem tanntæknir er kostur en ekki krafa.
- Sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og allir aðrir velkomnir












