

Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Langar þig að vinna á nýrri og spennandi deild þar sem þú færð tækifæri til að taka þátt í að móta þjónustuna og hafa áhrif á hvernig hún þróast?
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum til starfa á nýrri bráðamatsdeild. Starfið hentar þeim sem vilja sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga, takast á við fjölbreyttar áskoranir og efla færni sína í mati og meðferð bráðveikra sjúklinga.
Bráðamatsdeildin mun sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga með bráðveikindi sem þurfa umfangsmeira mat og meðferð en unnt er að veita á bráðamóttöku. Markmið deildarinnar er að greina og hefja meðferð snemma, tryggja aðkomu reynds fagfólks með öflugri þverfaglegri teymisvinnu þar sem áherslan er á að koma sjúklingum hratt í viðeigandi úrræði innan eða utan spítalans. Deildin er opin allan sólarhringinn og unnið er á vöktum.
Við bjóðum upp á sveigjanleika varðandi starfshlutfall og vinnufyrirkomulag. Upphaf starfa er samkomulag.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi .
Icelandic




























































