

Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum geislafræðingi til liðs við gott teymi á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð.
Hjá okkur er lögð áhersla á gott starfsumhverfi, faglega þróun og stuðning við nýtt starfsfólk. Boðið er upp á góða einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks og ríkir góður starfsandi í deildinni. Fjölbreytt tækifæri eru til að þróast í starfi, efla fagþekkingu og taka þátt í umbótum og þróun þjónustu við skjólstæðinga okkar.
Á deild skimunar og greiningar framkvæma geislafræðingar skimanir fyrir brjóstakrabbameini og klínískar myndgreiningar vegna brjóstameina. Einnig ferðast geislafræðingar um allt land og sinna brjóstaskimunum á landsbyggðinni. Starfið er því fjölbreytt og gefur góð tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu brjóstarannsókna.
Unnið er að vottun starfseminnar og gegna geislafræðingar mikilvægu hlutverki í þeirri vinnu. Því er hér kjörið tækifæri fyrir geislafræðing sem hefur áhuga á faglegri þróun, gæðum og áframhaldandi uppbyggingu brjóstamyndgreiningar.
Unnið er í dagvinnu virka daga. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að heilsu og öryggi starfsfólks og skapa betri möguleika á að samþætta vinnu og einkalíf.
Starfshlutfall og upphaf starfs eru samkvæmt samkomulagi.





























































